
Vörumerkjavernd SecureIT - Bregðumst við fölskum lénum og vefsíðum
SecureIT hefur í þónokkurn tíma boðið uppá mjög mikilvæga þjónustu með samstarfsaðila (SOCRadar) sem uppgötvar falskar vefsíður sem líkjast mjög mikið raunverulegum vefsíðum viðskiptavina okkar.
Þá er verið að breyta stöfum eða endingum léna sem dæmi til að plata fólk sem dæmi. Eins setjum við upp tiltekna tækni á síðum viðskiptavina okkar sem grípur það ef einhver reynir að búa til klón af síðunni til að geta bent strax á það ef einhver býr til hermun af raunverulegri vefsíðu. Þá fylgjumst við með t.d. logo'um fyrirtækja, myndum af starfsfólki og öðru sem beitt er til að búa til tengingu og trúverðugleika hjá fólki. Þessu hefur líka verið beitt þar sem fölsk síða er búin til og fólk skráir sig inn á síðuna haldandi að um raunverulega síðu sé að ræða og svo þegar fólk kaupir þjónustu er persónugreinanlegum og öðrum viðkvæmum upplýsingum eins og kortaupplýsingum, kennitölum og öðru stolið. Þessu er jafnvel beitt til að kúga fyrirtæki og fólk og jafnvel til að hóta því að senda svona upplýsingar á persónuvernd.
Þessari tegund árása hefur verið beitt í þónokkurn tíma. SecureIT hefur nú þegar tekið niður fjölda vefsíða og aðganga á samfélagsmiðlum sem gjarnan er beitt til að plata fólk inn á fölsku síðurnar. Eins viljum við benda á fréttir fjölmiðla í dag þar sem talað er um svona síður. Sjá t.d:
SecureIT hvetur sem flest fyrirtæki til að nýta sér svona þjónustur sem uppgötva falskar síður og vörumerkjamisnotkun til að verða ekki fyrir tjóni sem þessu og minnir fólk á að fara sérstaklega varlega núna þegar hvers kyns Black Friday og Cyber Monday tilboð eru auglýst útum allt.
Förum varlega og hugsum okkar amk tvisvar um þegar gylliboð eru auglýst á internetinu.