SecureIT logo
Main post image

SecureIT fær viðurkenningu Creditinfo um Framúrskarandi fyrirtæki á Íslandi árið 2024

SecureIT er eitt af aðeins 2.5% fyrirtækjum sem hljóta viðurkenningu Creditinfo á Íslandi árið 2024.



Creditinfo kynnti í síðustu viku árlegan lista sinn yfir Framúrskarandi fyrirtæki á Íslandi í Hörpu. Hrefna Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo, ávarpaði gestina og fagnaði sérstaklega því að fjöldi fyrirtækja á listanum hafi aukist þrátt fyrir strangari skilyrði og krefjandi rekstrarskilyrði. „Þetta eru einungis um 2,5% af öllum fyrirtækjum á landinu, svo árangur ykkar hér er einstaklega merkilegur,“ sagði Hrefna.

Þessi viðurkenning setur okkur meðal efstu rúmlega 2% íslenskra fyrirtækja sem uppfylla ströng skilyrði Creditinfo og staðfesta áreiðanleika SecureIT eftir ítarlega greiningu. Til þess að hljóta þessa viðurkenningu þurfa fyrirtæki m.a. að hafa skilað ársreikningi til RSK síðastliðin þrjú ár, vera í lánshæfisflokki 1-3, hafa sýnt jákvæðan rekstrarhagnað (EBIT) og jákvæða ársniðurstöðu þrjú ár í röð og eiginfjárhlutfall þarf að lágmarki að vera 20% þrjú rekstrarár í röð.

SecureIT teymið er þakklátt fyrir þessa viðurkenningu og er afar stolt af þessum árangri og þakklátt fyrir okkar frábæru viðskiptavini og samstarfsaðila. Við munum halda áfram að veita framúrskarandi þjónustu, ráðgjöf og aukið framboð á sviði netöryggis.