UTmessan 2026
SecureIT verður í bás B21 á UTmessunni 2026
Við hjá SecureIT erum gríðarlega spennt fyrir því að tilkynna að við verðum með bás á UTmessunni dagana 6. og 7. febrúar 2026. Í ár verðum við á efri hæðinni í bás B21 fyrir utan salinn Eldborg.
Lukkupottur og glaðningar
Síðastliðin ár höfum við gefið ýmsar skemmtilegar gjafir og í ár ákváðum við að ganga skrefinu lengri og gefa heppnum þátttakendum öryggisúttektir.
- 1 x Ytri innbrotsprófun (e. External Network Penetration Test)
- 3 x Skýjaúttekt (e. Cloud Security Assessment)
- 3 x Mat á öryggisstöðu (e. Security Posture Assessment)
Auk þess munum við bjóða uppá ýmsar veigar og ýmsa skemmtilega glaðninga fyrir áhugasama. Eina sem gera þarf til að taka þátt er að segja hæ við okkur á föstudeginum og leyfa okkur að skanna QR kóðann á UTmessu miðanum. Í framhaldi af UTmessunni munum við hafa samband við vinningshafana og finna góðan tíma til að útfæra úttektirnar.
Spjöllum saman um öryggi!
Hlökkum til að sjá sem flesta kíkja á básinn okkar til að spjalla um öryggi eða fá að heyra meira um þjónustur okkar og hvernig þær geta aðstoðað.
Á viðburðinum verða eftirfarandi frá SecureIT
- Magnús Birgisson - Framkvæmdastjóri SecureIT - mb@secureit.is
- Ásgeir Halldórsson - Sölu og markaðsmál - ah@secureit.is
- Snorri Ásmundsson - Leiðir öryggisprófanir - sa@secureit.is
- Aaron Galbraith - Öryggisráðgjafi - aaron@secureit.is